Posts

Showing posts from December, 2020

Að sækja um grænt kort - mín reynsla

Image
Þetta skjal lýsir minni reynslu við að sækja um grænt kort fyrir mig og son minn sem maki bandarísks ríkisborgara. Ég skrifa allt hér eftir besta minni og samvisku en get ekki ábyrgst neitt varðandi það hvernig ferlið er fyrir hvern og einn og það ætti alltaf að styðjast við opinberar leiðbeiningar við að fylla út eyðublöðin og tína til gögn. Okkar mál var að mörgu leyti einfalt (engin fyrri hjónabönd, engin herþjónusta, engin sakaskrá, engir alvarlegir smitsjúkdómar o.s.frv.) en að sumu leyti dálítið flókið (t.d. óvissa varðandi búsetu). Það eru margir hlutir sem geta flækt málin. Konan mín er fædd í Bandaríkjunum en að mestu alin upp á Íslandi og við kynntumst, giftumst og bjuggum saman í mörg ár á Íslandi. Vegna náms míns sáum við ástæðu til að flytja til Bandaríkjanna og við ákváðum að sækjast eftir grænu korti handa mér og syni okkar (fæddur á Íslandi). Ferlið Þetta ferli sem við fórum í gegnum heitir “consular processing” og er gert fyrir þau tilfelli þar sem innflytjandinn, mak...